Search

Dró mig sjálf af lista.

Posted by admin on March 24th, 2009

Tek fram að ég dró mig sjálf af lista VG þar sem ég tel að ekki hafi verið um lýðræðisleg vinnubrögð að ræða. Þakka fyrir mig samt  og þakka þeim sem studdu mig.

FLOTTUR LISTI .. TIL HAMINGJU ÞIÐ SEM ERUÐ Á HONUM.

Posted by admin on March 17th, 2009

Á laugardagskvöldið voru úrslitin úr forvali VG í Kraganum gerð kunn. Niðurstaðan er:

1. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
2.Ögmundur Jónasson
3. Ólafur ÞórGunnarsson
4. Andrés Magnússon
5. Margrét Pétursdóttir
6. Ása Björk Ólafsdóttir

Forvalið er á morgun í Suðpvesturkjördæmi!!!

Posted by admin on March 13th, 2009

 

 

 

Hægt er að kjósa í: Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ, milli  kl. 10:00 – 22:00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram kl. 16.00 – 21 í dag.
Ég er í framboði í 3. sæti!

Utankjörfundarkosning í dag og á morgun kl. 16-21

Posted by admin on March 12th, 2009

Utankjörfundarkosning í dag og á morgun kl. 16-21

Í dag Hamraborg 1-3 Kópavogi hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forvals VG í kraganum. Kosningin er í dag og á morgun frá kl 16 - 21.

Kjörið tækifæri fyrir þá sem ætla að vera úr bænum á helginni að drífa sig og kjósa.

Muna bara að setja töluna 3 fyrir framan nafnið mitt :)

——————–

Frambjóðendur kynntir í Garðabæ!!! 15 talsins!

Posted by admin on March 11th, 2009

Núna á fimmtudagskvöld kl. 20 ætlum við að ráðast á garðann þar sem hann er allra hæstur og stofna VG-félag í Garðabæ (helbláasta bæjarfélagi landsins!) Þar ætlum við að særa fram alla hugsanlega VG-inga í skápnum og bjóða þau velkomin fram í dagsbirtuna og til starfa. Um leið ætlum við að bjóða öllum öðrum í kraganum að koma og hitta frambjóðendur. Í raun yrði þetta þá sameiginlegt framtak og boð okkar allra frambjóðenda SV. Það væri því mjög gott ef þið munduð aftur nenna að koma með smá kræsingar… já?! Komið svo endilega líka með fólk með ykkur!!! Og auglýsið þetta sem víðast… allir velkomnir! 

Gillið verður sem sagt á FIMMTUDAGINN KL. 20 Í GARÐABERGI (Garðatorgi 7, beint fyrir ofan bókasafnið). Fundarstýra verður Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Garðbæingur. Það verða ekki neinar framboðsræður heldur mun hún bara örstutt kynna frambjóðendur með nafni, benda fólki á bæklingana og ítreka forvalið á laugardag, og svo bara “minglum” við eins og í góðu boði. Einhver tónlistarmaður treður upp, kosin verður stjórn nýja félagsins og svo er bara að hafa það dálítið huggulegt… og mála Garðabæ rauðgrænan!

Hlakka til að sjá ykkur,

Forvalið 14. mars.

Posted by admin on March 9th, 2009

Hér erum við sterk og mætt!!!

Kjördagur forvalsins í Kraganum verður þann 14. mars n.k. í Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og í Hlégarði í Mosfellsbæ frá kl. 10-22. Utankjörfundur verður í Hamraborg 1-3 í Kópavogi 12. og 13. mars frá kl. 16-21

Þeir sem eru utan höfuðborgarsvæðisins geta kosið í póstkosningu sem fer fram þannig:
1. Óska eftir að fá kjörseðil sendan skal berast í netfangið vg@vg.is.
2. Þegar kjörseðill berst skal viðtakandi prenta hann út og ganga frá kosningu sinni.
3. Kjörseðillinn skal lagður í ómerkt umslag sem síðan er sett í annað umslag merkt á eftirfarandi hátt:
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
b.t. kjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi
Pósthólf 175
121 Reykjavík
Kjósandi skal jafnframt skrifa nafn sitt og kennitölu yfir flipa ytra umslagsins.
4. Atkvæðið skal sent kjörstjórn merkt eins og að framan greinir og skal hafa borist kjörstjórn fyrir lokun kjörfundar 14. mars 2009.
Það er líka hægt að koma umslagi til t.d. frambjóðenda sem kemur svo umslaginu til skila.
Athugið að til að geta kosið þarf maður að vera skráður félagi, hér er hægt að skrá sig http://www.facebook.com/l.php?u=http://www.vg.is%2Fganga-i-flokkinn%2F
Ef viðkomandi er ekki með lögheimili í Kraganum þarf hann að senda póst á vg@vg.is og biðja um það að verða skráður í eitt svæðisfélaganna í Kraganum, t.d. Kópavogsfélagið :)

Til að kynna sér aðra frambjóðendur má kíkja á þetta: http://www.facebook.com/l.php?u=http://www.vg.is%2Fmedia%2Fkosningar%2F2009%2Fforvalsbaekl_SV_net.pdf

VG Reykjavík

Posted by admin on March 8th, 2009

Fréttir
8.3.2009 :
Úrslit í Reykjavíkurfovali
Endanlega úrslit í forvali Vinstri grænna í Reykjavík liggja nú fyrir. Alls kusu 1101 félagi í fimm efstu sætin í tveim kjördæmum. Atkvæði skiptust þannig:

Katrín Jakobsdóttir, 856 atkvæði í 1. sæti
Svandís Svavarsdóttir, 616 atkvæði í 1. sæti
Lilja Mósesdóttir, 480 atkvæði í 2. sæti
Árni Þór Sigurðsson, 342 atkvæði í 2. sæti
Álfheiður Ingadóttir, 479 atkvæði í 3. sæti
Kolbrún Halldórsdóttir, 446 atkvæði í 3. sæti
Ari Matthíasson, 467 atkvæði í 4. sæti
Auður Lilja Erlingsdóttir, 376 atkvæði í 4. sæti
Davíð Stefánsson, 474 atkvæði í 5. sæti
Steinunn Þóra Árnadóttir, 447 atkvæði í 5. sæti

Kæru vinir.
Þeir sem enn hafa ekki skráð sig í VG vegna forvalsins á morgun geta gert það til miðnættis á netinu www.vg.is.
Þakka ykkur öllum fyrir að nenna að vera í mínu stuðningsliði.
Ég er þess fullviss að niðurstaðan í forvalinu mun leggja grunn að glæsilegum sigri VG í Alþingiskosningunum í apríllok. Sá sigur mun aftur tryggja að við endurreisnina verði félagshyggja og velferð höfð að leiðarljósi.
Ef ég fæ umboð ykkar mun ég fara og ná í peninginn til Lúx og Tortólu og sparka í punginn á þjófunum í leiðinni.
Áfram VG.

MIREYA SAMPER, 3ja sæti VG SV

Posted by admin on March 6th, 2009

Mireya er myndlistarkona að mennt, en fæst einnig við kvikmyndagerð hérlendis
sem erlendis. Hún hefur búið víðs vegar um heiminn og stundað nám og fjölbreytt
störf. Mireya hefur lengi verið virk í stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
í Kópavogi og undan farin þrjú ár verið formaður þess félags. Hún býr með Víði
Árnasyni og á eina dóttur sem er 13 ára og heitir Asra Rán Björt Zawarty Samper.
Mireya vill berjast fyrir lýðræði, jafnrétti, breyttri stjórnsýslu og öflugu velferðarkerfi
þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar í fyrirrúmi. Að mannréttindi, kvenfrelsi og
réttlæti sé virkt ekki bara í orði heldur á borði og í verki.
Náttúruvernd og nýsköpun er það sem íslensk þjóð verður að sinna núna af fullum
krafti auk þess að hugsa betur bæði um börnin sín og eldri borgara. Þá vill Mireya
að Íslendingar sanni og sýni fordæmi fyrir því að Ísland hefur alla kosti fram yfir
mörg önnur lönd til að framleiða eingöngu lífrænt ræktaða vöru hvort sem um
er að ræða kjöt eða grænmeti. Þetta er gjöf náttúru Íslands sem ber að virða og
þiggja.
Sem leiðsögumaður til 10 ára gafst Mireyu tækifæri til að kynnast vel Íslandi og
perlum þess til hins ýtrasta. Öðlast þekkingu á þeim náttúru perlum sem Ísland
hefur að geyma. Þessar perlur eru auðlindir sem ber að virða, passa og nýta en
með varfærni.

Mireya Samper 3ja sæti í Kraganum!

Posted by admin on March 5th, 2009

LÁTTU ÞAÐ BERAST Kynningarfundur frambjóðenda í forvali VG Suðvestur verður haldið nk. laugardag 7. mars kl. 15 -17 að Hamraborg 1-3, félagsheimili VG í Kópavogi. Forval Vinstri grænna fer síðan fram í Suðvesturkjördæmi á laugardaginn eftir rúma viku 14. mars. Sért þú félagi í VG mætir þú á kjörstað og kýst. Ég óska eftir atkvæði þínu í 3. sæti. Sért þú ekki félagi í VG þá má ganga í flokkinn með því að fara í gegnum http://www.facebook.com/l.php?u=http://www.vg.is%2Fganga-i-flokkinn en það þarf að gerast fyrir miðnætti föstudagskvöldið 13. mars. Hægt er að fá kjörseðil sendan í tölvupósti með því að biðja um það á vg@vg.is. Kjörseðillinn þarf að hafa borist með pósti fyrir laugardaginn 14. mars. Ef þig langar að styðja mig þá endilega taktu þátt. Mireya Samper 3ja sæti !